Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Fjallabyggðar, íbúðarsvæði á malarvellinum á Siglufirði
Skipulagsstofnun staðfesti 10. október 2018 breytingu á Aðalskipulagi Fjallabyggðar 2008-2028 sem samþykkt var í bæjarstjórn 21. ágúst 2018.
Í breytingunni felst að 11.500 m² af miðsvæði Siglufjarðar breytist í íbúðarsvæði Í2.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.
Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.