Opinn kynningarfundur vegna Eldisgarðs Samherja á Reykjanesi
Mat á umhverfisáhrifum - kynning á umhverfismatsskýrslu
Fimmtudaginn 23. febrúar kl. 17-19, Courtyard by Marriott, Reykjanesbæ.
Skipulagsstofnun vekur athygli á því að Samherji stendur fyrir kynningarfundi um mat á umhverfisáhrifum Eldisgarðs í Auðlindagarði HS Orku á Reykjanesi, Reykjanesbæ.
Fundurinn verður í formi opins húss og boðið verður upp á léttar veitingar.
Íbúum og öllu áhugafólki um atvinnuuppbyggingu á svæðinu er boðið að mæta svo að sjónarmið sem flestra komi fram.