Endurnýjun hitaveitulagna og förgun eldri lagna, Borgarbyggð og Hvalfjarðarsveit
Mat á umhverfisáhrifum - ákvörðun um matsskyldu
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að fyrirhuguð endurnýjun hitaveitulagna og förgun eldri lagna í Borgarbyggð og Hvalfjarðarsveit skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar er aðgengileg hér.
Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 21. október 2019.